Skilmálar Fígaró náttúrusteins / Steinborgar ehf. 1.1.2026

 

Samskipti.

Öll samskipti um tilboð, hönnun, vinnsluferil verka, afhendingu og aðrar upplýsingar milli Steinborgar ehf. / Fígaró náttúrusteins (hér eftir sameiginlega nefndur ,,söluaðili“) og verkkaupa skulu vera í tölvupósti. Munnlegar upplýsingar milli aðila og kostnaður vegna mistaka sem af því hlýst, er alfarið á ábyrgð viðkomandi verkkaupa. Söluaðili ber ekki ábyrgð á vinnubrögðum þriðja aðila, svo sem verktaka/iðnaðarmanna, einstaklinga eða fyrirtækja, jafnvel þó söluaðili hafi bent á viðkomandi til að annast verkefni.

Öll tilboð sem söluaðili afhendir verkkaupa skal fara með sem trúnaðarmál milli söluaðila og verkkaupa.

 

Pöntunarstaðfesting og staðfestingargjald

Verð tilboða eru byggð á uppgefnum málum og geta því breyst eftir að mælingar á vettvangi hafa farið fram. Verð miðast við eina máltöku og að uppsetning sé samfelld. Öll verð eru gefin upp með virðisaukaskatti. Tilboð eru gerð með fyrirfara um að steinn sé til á lager þegar tilboðið er tekið.

Vinklar, járngrindur og önnur burðarvirki sem kann að þurfa til uppsetningar eru ekki hluti af tilboðsverði.

Tilboð miðast við að máltaka, uppsetning og akstur séu innan höfuðborgarsvæðisins.

Tilboð telst eingöngu staðfest ef 50% innáborgun berst inn á verkið á gildistíma. Vinnsluferill hefst ekki fyrr en sú greiðsla hefur borist og ekki er hægt að taka frá hráefni né pláss í framleiðslu fyrr. Gildistími tilboða eru 30 dagar. Eftir að tilboð er samþykkt af verkkaupa með innáborgun sendir söluaðili staðfestingu í tölvupósti til verkkaupa ásamt frekar upplýsingum til undirbúnings fyrir verkkaupa. Öll verð eru staðgreiðsluverð nema annað sé tekið fram. Öll tilboð eru með fyrirvara um innsláttarvillur.

Söluaðili áréttar að þegar um náttúrustein er að ræða er ekki hægt að tryggja að sami steinn með sama útliti og eiginleikum geti boðist verkkaupa í öðru tilboði á síðari stigum. Þegar tilboð er staðfest kaupir verkkaupi tiltekið magn af stein og getur söluaðili ekki tryggt að hægt sé að fá viðbætur við þann stein á síðari stigum.

Söluaðili áskilur sér rétt til að endurgreiða seldan stein ef í ljós kemur að hann hefur orðið fyrir tjóni eða aðrar forsendur leiði til þess að ekki sé hægt að afhenda steininn.

 

Gildistími sölutilboða.

Almenn sölutilboð gilda í 30 daga frá dagsetningu tilboðs nema annað sé tekið fram.

Innréttingar og ábyrgð verkkaupa vegna þeirra

Kaupanda er bent á að láta fagmann um uppsetningar innréttinga eða hafa umsjón með uppsetningu þeirra. Kaupandi ber ábyrgð á að innréttingar séu til staðar í upphafi vinnslutíma, þær séu traustar og rétt upp settar. Söluaðili tekur ekki ábyrgð á tjóni sem kann að verða á steinplötum af völdum innréttinga. Telji starfsmenn söluaðila að uppsetning innréttinga sé ófullnægjandi eða ábótavant að einhverju leyti sem getur valdið tjóni á steinplötunni áskilur söluaðili sér rétt til að hverfa frá verkstað og koma aftur þegar úr hefur verið bætt. Söluaðili áskilur sér rétt til að innheimta gjald fyrir slíkar auka ferðir.

Ef innréttingar eru færðar, hönnun er breytt eða útfærslur breytast eftir að máltaka hefur farið fram áskilur söluaðili sé rétt til að leggja allan þann viðbótarkostnað sem af því hlýst á verkkaupa.

 

Eiginleikar steintegunda

Verkkaupi gerir sér grein fyrir þeim breytileika sem kann að vera í náttúrustein, enda um náttúrulegt efni að ræða en ekki staðlað framleiðsluefni. Rétt er að árétta að engin náttúrusteinsplata er nákvæmlega eins og breytileiki kann einnig að vera á sýruþoli og styrkleika á milli einstakra tegunda af náttúrustein. Sé um framleiddan stein að ræða ( svo sem kvartssteins, keramiksteins o.fl. ) hvetur söluaðili verkkaupa til þess að kynna sé tækniblöð framleiðandans. Vakin er athygli á að munur getur verið á litatónum milli framleiðslunúmera framleiddra steinplatna.

Verkkaupa býðst að kaupa tiltekin stein sem merktur er með tilteknu blokkarnúmeri. Söluaðili mun afhenda stein úr sömu blokk en áskilur sér rétt til að ábyrgjast ekki að afhenda þann fleka sem sýnilegur var á hverjum tíma.

Söluaðili ítrekar að breytileiki náttúrusteins getur verið mikill. Því ábyrgist söluaðili ekki að þau sýnishorn sem verkkaupi kann að sjá eða fá lánuð líkist eða séu úr sama fleka eða sömu blokk á sá steinn sem afhentur verður.

 

Pökkun, frágangur, flutningur flutningsrekkar

Leiga á flutningsrekkum er viðskiptavinum að kostnaðarlausi í allt að 10 daga. Hafi flutningsrekka ekki verið skilað innan þess tíma reiknast daggjald, 3.400 kr.- + vsk. Eftir 4. mánaða vanskil er sendur 408.000 kr. + vsk. reikningur fyrir virði rekkans. Týnist rekki eða skemmist er það á ábyrgð kaupanda.

 

Afgreiðslutími.

Þegar 50% staðfestingargjald hefur borist með innborgun berst verkkaupa tölvupóstur þar sem honum er úthlutuð vika þar sem máltökur munu fara fram. Í þeim tölvupósti berast einnig leiðbeiningar sem fara ber eftir varðandi máltöku og uppsetningu.

Að máltöku lokinni má búast við að framleiðsla taki 3-7 vikur.

Uppgefinn vinnslutími tilboða og pantana er alltaf áætlaður, er ekki loforð og er háður verkefnastöðu hverju sinni. Ekki er bættur kostnaður sem hlýst af ef raunverulegur vinnslutími fer fram yfir áætlaðan vinnslutíma vörunnar.

Nauðsynlegt er að verkkaupi láti söluaðila vita eins fljótt og auðið er geti hann ekki nýtt sér úthlutaða viku til máltöku/vinnslutíma svo hægt sé að finna nýjan vinnslutíma. Verkkaupi gerir sér grein fyrir að slíkar breytingar geta seinkað verkinu. Ef verkkaupi mun ekki geta nýtt sér úthlutaðan vinnslutíma getur verkkaupi ekki einhliða ákveðið nýjan vinnslutíma.

Að öðru leiti er vísað í viðskiptasamninga og skriflegra samskipta.

 

Uppsetning verkefna.

Lokagreiðsla, 50% af heildaverði tilboðs, fer fram 7 – 10 dögum fyrir uppsetningu verks. Verkkaupa mun berast tölvupóstur frá söluaðila 7 – 10 dögum fyrir uppsetningu þar sem verkkaupi er látinn vita af áætluðum uppsetningardegi og eftirstöðvum tilboðs. Gangi verkkaupi ekki frá lokagreiðslu tilboðs á tilsettum tíma áskilur söluaðili sér rétt til að seinka uppsetningu þar til greiðsla hefur borist.

Verkkaupa er bent á að bíða með lokafrágang líkt og málningarvinnu í kring um verkstað og uppsetningu spónlagðra hliða á efri skápum þar til uppsetningu steins er lokið. Verkkaupa er einnig bent á að gæta að verðmætum hlutum sem gætu orðið fyrir tjóni í kring um verkstað.

Ekki er innifalið að fjarlægja eldri plötur á verkstað.

Gert er ráð fyrir að 2 menn geti unnið verkið, ef hins vegar er þörf á krana eða auka mannskap þá greiðir verkkaupi þann auka kostnað.

Aðgengi skal vera gott á verkstað og gönguleiðir hreinar og auðfarnar. Slysahætta skal vera í lágmarki á verkstað. Söluaðili getur hafnað verkefnum eða ákveðið að halda ekki áfram með verkefni, t.d. ef vinnuaðstæður eru erfiðar og öryggi starfsmanna ekki tryggt.

Ef um útselda vinnu er að ræða reiknast vinnutími frá þeim tíma sem starfsmenn söluaðila hefja undirbúning að verki á starfstöð fyrirtækisins á Breiðhöfða 53, 110 Reykjavík. Ef gera þarf sérstakar ráðstafanir til að framkvæma uppsetningu, greiðist sú aukavinna sérstaklega.

Að uppsetningu lokinni er mikilvægt að steinninn sé látin í friði í allt að 12 tíma. Ekki má snerta sílikon, t.d. við helluborð, á þeim tíma. Verkkaupi er hvattur til að kynna sér notkunarleiðbeiningar fyrir steininn og notast ávallt við ráðlögð hreinsiefni.

 

Verðbreytingar og seinkun verka.

Söluaðili áskilur sér rétt til verðbreytinga ef forsendur verkefna breytast.

Söluaðili áskilur sér alltaf rétt til gjaldfærslu útseldrar vinnu starfsmanns vegna alls sem tengist undirbúnings pantana fyrir framleiðslu, tæknilega útfærslu, viðgerðir og önnur verkefni.

Ef vinnslutíma staðfestra tilboða seinkar áskilur söluaðili sér rétt til að leggja geymslugjald á hráefni og uppfæra kostnað verkliða er snúa að smíði, vinnslu og uppsetningu verks í samræmi við byggingarvísitölu, launaþróun og almenna verðlagsþróun.

 

Ábyrgðarskilmálar

Almennt um vörur Fígaró náttúrusteins

Ábyrgð á stein, uppsetningu hans og öðrum vörum er samkvæmt almennum lögum um lausafjárkaup nr. 50/2000.

Söluaðili ber ekki ábyrgð á stein sem settur hefur verið upp af þriðja aðila. Sjái verkkaupi um uppsetningu eða leggi hana í hendur þriðja aðila og komi upp hráefnisgalli í stein, skal tilkynna um slíkt áður en uppsetning fer fram. Söluaðili tekur ekki þátt í kostnaði sem hlýst af uppsetningu gallaðs efnis sem unnið var af verkkaupa eða þriðja aðila.

Söluaðili tekur ekki ábyrgð á göllum, skemmdum eða litabreytingum á stein sem söluaðili tekur að sé að skera, vinna eða meðhöndla á nokkurn hátt og er ekki keyptur af söluaðila.

Ofangreindir söluskilmálar gilda ávallt, nema um annað sé́ samið á skriflegan hátt.

Söluskilmála, ábyrgðarskilmála og upplýsingar um vörur, má́ finna á heimasíðu Fígaró náttúrusteins,  www.figaro.is

Nýjasta útgáfa upplýsinga á vef Fígaró náttúrusteins gildir hverju sinni og falla eldri útgáfur úr gildi sjálfkrafa.

Skilmála þessa er öðrum óheimilt að afrita og nota sem sína eigin.

Marmari