Steinsmiðja í 19 ár 

Meira en 90
steintegundir á lager

Fígaró hefur glætt fallegar hugmyndir og hönnun lífi í 19 ár.

Fígaró náttúrusteinn var stofnað árið 2006 af þriggja manna teymi með stóra drauma og skýr markmið. Allt frá upphafi hefur Fígaró náttúrusteinn lagt metnað sinn í að varðveita það handbragð og þau gæði sem fyrirtækið er þekkt fyrir. Með árunum stækkaði teymið, draumarnir, markmiðin og fyrirtækið sjálft. Gildin okkar eru þó alltaf þau sömu, : sífelld þekkingarleit, vandvirkt efnisval og sala á hágæða viðhaldsvörum sem tryggja endingu steinsins og góða upplifun viðskiptavina okkar.

Þú kemur með hugmyndina
Við finnum lausnina
Saman veljum við steininn í verkið

Fáðu innblástur

Fígaró verk

Galdurinn við fallega hönnun er að raða hlutunum rétt saman. Í gegnum árin höfum við hjá Fígaró verið svo lánsöm að fá tækifæri til að vinna með mörgum af fremstu arkitektum og hönnuðum landsins. Hér má sjá hluta þeirra glæsilegu verkefna sem við höfum komið að. 

Heimilið er fallegra með íslensku handverki frá Fígaró

Fígaró náttúrusteinn er steinsmiðja sem stofnuð var árið 2006 og hefur verið í eigu sömu aðila frá upphafi. Við höfum ávallt lagt mikið upp úr persónulegri þjónustu þar sem gæði og faglegur frágangur eru lykilatriði. Vöruúrval okkar er geymt í sýningarsal sem gerir upplifunina við val á stein einstaka. Öll framleiðsla fer fram í steinsmiðju okkar þar sem handbragð og hátækni fara saman. 

Fígaró náttúrusteinn hefur verið starfandi steinsmiðja í 18 ár. Hafðu samband og fáðu tilboð í verkið.
Framkvæmdastjóri
Hörður Hermannsson
„19 ára reynsla hefur kennt okkur að nánast allt er hægt þegar kemur að náttúrusteini, þetta snýst bara um tíma“

Hörður

Marmari